Roberto Firmino átti fínan leik þegar Liverpool sigraði Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Firmino skoraði seinna mark Liverpool en það reyndist markið sem skildi liðin að. Leikurinn endaði með 2-1 sigri Liverpool.
Eftir leikinn birtust myndir á samfélagsmiðlum sem eru ekki fyrir viðkvæma en þar sést Jan Vertonghen, varnarmaður Tottenham, pota allsvakalega í augað á Firmino.
Firmino gat ekki klárað leikinn og þurfti að sækja sér aðstoðar á spítala að honum loknum.
Brasilíumaðurinn greindi frá því á Instagram að það væri allt í lagi með augað en hvort hann verði klár í slaginn gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni á þriðjudag á eftir að koma í ljós.
Ef þú vilt sjá myndir af því þegar Vertonghen potaði í auga Firmino, smelltu þá hér en við vörum við því að þetta er ekki fyrir viðkvæma.
Athugasemdir