Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 16. september 2018 13:10
Kristófer Jónsson
Byrjunarlið KR og Keflavíkur: Sindri Snær í mark KR
Sindri byrjar í marki KR í dag.
Sindri byrjar í marki KR í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Kristinn kemur aftur inní lið Keflavíkur.
Sindri Kristinn kemur aftur inní lið Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Núna klukkan 14:00 hefst leikur KR og Keflavíkur í 20.umferð Pepsi-deildar karla á Alvogenvellinum. KR-ingar sitja í fjórða sæti deildarinnar með 30 stig og eru í bullandi Evrópubaráttu við FH sem að er sæti neðar með jafnmörg stig. Það er því ljóst að hvert stig og hvert mark mun gilda það sem að eftir lifir móts.

Keflvíkingar eru fallnir úr Pepsi-deildinni og eiga enn eftir að vinna leik í sumar. Stoltið er því undir hjá Suðurnesjamönnum sem að hafa gjörsamlega engu að tapa. Byrjunarliðin eru nú klár.

Heimamenn gera tvær breytingar á liði sínu frá tapinu gegn FH í síðustu umferð. Beitir Ólafsson er ekki í leikmannahópi liðsins en hans í stað stendur Sindri Snær Jensson á milli stanganna. Þá er Skúli Jón Friðgeirsson í leikbanni en Atli Sigurjónsson kemur inn í hans stað.

Þá gera Keflvíkingar einnig tvær breytingar á sínu liði frá 2-1 tapi liðsins gegn Fylki. Sindri Kristinn Ólafsson kemur aftur í mark Keflvíkinga í stað Jonathan Faerber og þá er Lasse Rise meiddur. Hans í stað kemur Tómas Óskarsson.

Beinar textalýsingar:
14:00 Grindavík-Fjölnir
14:00 KR-Keflavík
14:00 Víkingur-FH

Byrjunarlið KR:
13. Sindri Snær Jensson (m)
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
6. Gunnar Þór Gunnarsson
8. Finnur Orri Margeirsson
9. Björgvin Stefánsson
10. Pálmi Rafn Pálmason
11. Kennie Chopart
18. Aron Bjarki Jósepsson
19. Kristinn Jónsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson

Byrjunarlið Keflavíkur:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
2. Anton Freyr Hauks Guðlaugsson
4. Ísak Óli Ólafsson
7. Davíð Snær Jóhannsson
8. Hólmar Örn Rúnarsson
9. Aron Kári Aðalsteinsson
13. Marc McAusland (f)
16. Sindri Þór Guðmundsson
23. Dagur Dan Þórhallsson
25. Frans Elvarsson
45. Tómas Óskarsson

Beinar textalýsingar:
14:00 Grindavík-Fjölnir
14:00 KR-Keflavík
14:00 Víkingur-FH
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner