Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 16. september 2018 16:13
Matthías Freyr Matthíasson
Byrjunarlið Vals og ÍBV: Eiður Aron í leikbanni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna klukkan 17:00 hefst leikur Vals og ÍBV í 20.umferð Pepsi-deildar karla á Origovellinum. Valsmenn sitja í efsta sæti deildarinnar með 40 stig og eru í bullandi baráttu við Stjörnuna um Íslandsmeistaratitilinn og leiða þá baráttu með einu stigi.

ÍBV eru í 8 sæti deildarinnar og geta með sigri tryggt endanlega veru sína í deild þeirra bestu.. Byrjunarliðin eru nú klár.

Heimamenn gerðu jafntefli við KA 3 - 3 í síðustu umferð. Valsmenn gera tvær breytingar frá þeim leik. Eiður Aron Sigurbjörnsson er í leikbanni og Ólafur Karl er ekki í hóp. Í stað þeirra manna koma Ívar Örn og Einar Karl Ingvarsson

HJá gestunum er Sigurður Arnar Magnússon í leikbanni og Víðir Þorvarðarson er á bekknum. Alfreð Már Hjaltalín og Jonathan Ian Franks koma í byrjunarliðið.

Byrjunarlið Vals:
1. Anton Ari Einarsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Ívar Örn Jónsson
4. Einar Karl Ingvarsson
6. Sebastian Starke Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
16. Dion Acoff
17. Andri Adolphsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
77. Kristinn Freyr Sigurðsson

Byrjunarlið ÍBV:
21. Halldór Páll Geirsson (m)
5. David Atkinson
7. Kaj Leo í Bartalsstovu
8. Priestley Griffiths
11. Sindri Snær Magnússon (f)
18. Alfreð Már Hjaltalín
19. Yvan Erichot
30. Atli Arnarson
34. Gunnar Heiðar Þorvaldsson
77. Jonathan Franks
92. Diogo Coelho


Athugasemdir
banner
banner