Everton tapaði óvænt fyrir West Ham á Goodison Park í dag. Gylfi Þór Sigurðsson gerði eina mark heimamanna í leiknum.
Sky Sports hefur gefið mönnum einkunnir og eru markaskorarar Hamranna efstir á blaði þar.
Andriy Yarmolenko setti tvö mörk og fær átta í einkunn en Marko Arnautovic var maður leiksins. Austurríski framherjinn var mjög hættulegur og skoraði eitt og lagði upp eitt.
Gylfi fær sex í einkunn þrátt fyrir frábært skallamark en verstu menn Everton voru Jordan Pickford í markinu og miðvarðaparið sem var skipað af Mason Holgate og Kurt Zouma.
Þetta voru fyrstu stig West Ham á tímabilinu en Everton er með sex stig eftir fimm leiki.
Everton: Pickford (5), Kenny (7), Holgate (5), Zouma (5), Digne (7), Gueye (6), Schneiderlin (5), Walcott (6), Sigurdsson (6), Calvert-Lewin (6), Tosun (5)
Varamenn: Bernard (6), Niasse (6), Lookman (6)
West Ham: Fabianski (7), Zabaleta (6), Balbuena (6), Diop (7), Masuaku (6), Noble (6), Rice (7), Obiang (7), Yarmolenko (8), Arnautovic (9), Felipe Anderson (7)
Varamenn: Sanchez (6), Antonio (7), Snodgrass (6)
Athugasemdir