Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 16. september 2018 05:55
Gunnar Logi Gylfason
Ítalía í dag - Skorar Ronaldo sitt fyrsta mark í Seria A?
Nær Ronaldo að skora sitt fyrsta mark í Seria A?
Nær Ronaldo að skora sitt fyrsta mark í Seria A?
Mynd: Getty Images
Sex leikir eru á dagskrá á þessum sunnudegi í Seria A.

Veislan hefst 10:30 þegar Chievo Verona fer í heimsókn í höfuðborgina og mætir Roma. Gestirnir eru með -2 stig eftir að þrjú stig voru tekin af þeim.

Klukkan 13 hefjast þrír leikir. Genoa og Bologna mætast, Udinese og Torino. Einnig eigast Juventus og Sassuolo við á þeim tíma. Búist er við sigri Juventus, eins og oftast í ítalska boltanum, en spennandi verður að sjá hvort að Ronaldo nái að brjóta ísinn í markaskorun á Ítalíu.

Klukkan 16 fær Empoli Lazio í heimsókn. Empoli hefur byrjað ágætlega og er með 4 stig eftir 3 leiki. Lazio er hins vegar með þrjú stig eftir þrjá leiki og freistar þess að klífa upp töfluna með sigri.

Í síðasta leik dagsins, sem hefst 18:30, fær Cagliario sögufrægt lið AC Milan í heimsókn. Milan hefur aðeins spilað tvo leiki og hefur unnið annan og tapað hinum. Cagliari er með fjögur stig eftir þrjá leiki.

10:30 Roma - AC Chievo Verona
13:00 Genoa - Bologna FC
13:00 Juventus - Sassuolo
13:00 Udinese - Torino
16:00 Empoli - Lazio
18:30 Cagliari - Milan
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 33 27 5 1 79 18 +61 86
2 Milan 33 21 6 6 64 39 +25 69
3 Juventus 33 18 10 5 47 26 +21 64
4 Bologna 33 17 11 5 48 26 +22 62
5 Roma 32 16 7 9 57 38 +19 55
6 Atalanta 32 16 6 10 59 37 +22 54
7 Lazio 33 16 4 13 42 35 +7 52
8 Napoli 33 13 10 10 50 41 +9 49
9 Fiorentina 32 13 8 11 45 36 +9 47
10 Torino 33 11 13 9 31 29 +2 46
11 Monza 33 11 10 12 35 43 -8 43
12 Genoa 33 9 12 12 35 40 -5 39
13 Lecce 33 8 11 14 30 48 -18 35
14 Cagliari 33 7 11 15 36 56 -20 32
15 Verona 33 7 10 16 31 44 -13 31
16 Empoli 33 8 7 18 26 48 -22 31
17 Udinese 32 4 16 12 30 48 -18 28
18 Frosinone 33 6 10 17 40 63 -23 28
19 Sassuolo 33 6 8 19 39 65 -26 26
20 Salernitana 33 2 9 22 26 70 -44 15
Athugasemdir
banner
banner
banner