20. umferðin í Pepsi-deildinni hefst í dag en Grindavík fær Fjölni meðal annars í heimsókn klukkan 14:00. Fjölnismenn verða að ná sigri í fallbaráttunni en Óli Stefán Flóventsson, þjálfari liðsins, spilaði á sínum tíma með Grafarvogsliðinu.
Smelltu hér til að hlusta á Óla Stefán í Miðjunni
„Mér finnst afskaplega leiðinlegt að Fjölnismenn skuli vera í þessari aðstöðu en þeir fá enga greiða frá mér," sagði Óli Stefán í Miðjunni á Fótbolta.net í vikunni.
Grindavík endaði með 31 stig í 5. sæti í Pepsi-deildinni í fyrra en liðið er núna með 25 stig í 6. sætinu.
„Við undirbúum okkur alveg ofboðslega fyrir erfiðan leik. Það verður fyrsta skrefi af þremur í að gera betur en Grindavík hefur gert áður og bæta árangurinn frá því í fyrra," sagði Óli um markmið Grindavíkur út tímabilið.
Smelltu hér til að hlusta á Óla Stefán í Miðjunni
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir