„Þetta er góð tilfinning. Ekki góður fyrri hálfleikur en við spiluðum vel í seinni hálfleik að mínu mati." sagði Patrick Pedersen leikmaður Vals eftir sigur á ÍBV 5 - 1 en Patrick skoraði þrennu og var maður leiksins.
Lestu um leikinn: Valur 5 - 1 ÍBV
„Við sköpuðum nóg af færum í fyrri hálfleik en við gátum ekki skorað úr þeim en við gerðum það í seinni hálfleik sem var mikilvægast.
Þessir þrír síðustu leikir voru og eru úrslitaleikir og þrjú stig í dag skipta öllu máli"
Þú ert komin yfir Hilmar Árna í keppninni um gullskóinn. Ertu með einhver markmið fyrir síðustu tvo leikina.
„Nei. Það sem skiptir mestu er að vinna deildina og svo sjáum við eftir það hvernig mér gengur að skora."
Athugasemdir