Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 16. september 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Alcacer: Mikið af fólki sem kom illa fram við mig
Alcacer fagnar marki með Dortmund.
Alcacer fagnar marki með Dortmund.
Mynd: Getty Images
Paco Alcacer, sóknarmaður Borussia Dortmund, er ekki búinn að ákveða hvort hann muni fagna ef hann skorar gegn Barcelona. Dortmund og Barcelona munu eigast við í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld.

Alcalcer var lánaður frá Barcelona til Dortmund fyrir síðasta tímabil og var hann í kjölfarið keyptur til félagsins.

Þessi 26 ára gamli Spánverji skoraði 18 mörk í þýsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og er nú þegar kominn með sjö mörk í öllum keppnum á þessari leiktíð.

„Ég mun ákveða það í augnablikinu," sagði Alcacer í samtali við SER Catalunya, spurður að því hvort hann muni fagna marki gegn Barcelona.

Hann segir að ákveðið fólk hjá Barcelona hafi komið illa fram við sig.

„Ég ber virðingu fyrir mörgum hjá Barcelona. Mikið af fólki kom vel fram við mig, en það var líka mikið af fólki sem kom illa fram við mig. Liðsfélagarnir og stuðningsmennirnir komu alltaf vel fram við mig."
Athugasemdir
banner
banner
banner