Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. október 2018 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Matic tæpur fyrir leikinn mikilvæga gegn gömlu félögunum
Mynd: Getty Images
Nemanja Matic, miðjumaður Manchester United, er tæpur fyrir leik Manchester United gegn Chelsea á laugardag.

Matic dró sig út úr landsliðshópi Serbíu í síðustu viku vegna bakmeiðsla.

Matic fór heim til Manchester til að fá bót meina sinn en óvíst er hvort hann geti spilað gegn gömlu félögunum í Chelsea. Leikurinn er afar mikilvægur fyrir United sem freistar þess að ná í annan sigur í röð eftir endurkomusigurinn á Newcastle um þar síðustu helgi.

Vinstri bakvörðurinn Luke Shaw, sem hefur verið besti leikmaður United á tímabilinu, er líka talinn tæpur fyrir leikinn gegn Chelsea en hann þurfti að draga sig úr enska landsliðshópnum fyrir leikina gegn Króatíu og Spáni.

Leikur Chelsea og Man Utd er í hádeginu á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner