Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. október 2018 12:00
Elvar Geir Magnússon
Van Dijk sprautaður fyrir leiki - Spilar þrátt fyrir rifbeinsbrot
Van Dijk er algjör lykilmaður hjá Liverpool.
Van Dijk er algjör lykilmaður hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Miðvörðurinn magnaði Virgil van Dijk spilar í gegnum sársauka en hann er með tvö brotin rifbein.

Hollendingurinn er sprautaður fyrir leiki en hann varð fyrir meiðslunum í september.

Van Dijk skoraði fyrir hollenska landsliðið í 3-0 sigri gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni síðasta laugardag en fékk frí frá vináttulandsleik gegn Belgíu.

„Hann vildi ólmur spila gegn Þýskalandi, félagið hefði viljað halda honum hjá sér. Ef þú færð eitthvað þá verður þú að gefa til baka," segir Ronald Koeman, landsliðsþjálfari Hollands.

Van Dijk er mættur til Liverpool þar sem hann býr sig undir útileik gegn Huddersfield á laugardaginn. Liverpool er eitt þriggja liða sem eru með 20 stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, hin eru Manchester City og Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner