ÍBV er sagt hafa áhuga á því að fá miðjumanninn Alex Freyr Hilmarsson frá KR.
Þetta kom fram í hlaðvarpinu Dr Football í gær.
„Þeir eru að reyna að fá Alex Freyr úr KR. Hemmi þarf að fara að sækja eitthvað því Eyjamönnum vantar svo sannarlega leikmenn í hópinn," sagði Hörður Snævar Jónsson í hlaðvarpinu.
Alex Freyr, sem er 28 ára gamall, spilaði með Kórdrengjum á láni á síðustu leiktíð. Hann skoraði tvö mörk í níu leikjum í Lengjudeldinni á síðasta tímabili.
Alex er uppalinn hjá Sindra, en hann lék með Grindavík og Víkingi Reykjavík áður en hann fór yfir til KR árið 2019.
Hann er samningsbundinn út KR næsta sumar.
Stuðlaberg fasteignasala hafði samband við síðasta vin suðurnesja. Leikmaður kvennaliðs Keflavíkur, Natasha Anasi var valin í landsliðið um leið og hún kvaddi Bítlabæinn. https://t.co/mUbWRj0pgj
— Dr. Football Podcast (@drfootballpod) November 15, 2021
Athugasemdir