Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. nóvember 2021 12:35
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið U21 í Grikklandi: Kristall á bekknum
Icelandair
Birkir Heimisson kemur inn.
Birkir Heimisson kemur inn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Steinn
Bjarki Steinn
Mynd: Getty Images
Íslenska U21 árs landsliðið mætir Grikklandi í fimmta leik sínum í undankeppni fyrir EM. Ísland er með sjö stig eftir fjóra leiki og Grikkland er með ellefu stig eftir fimm leiki.

Leikurinn fer fram á Stadio Theodoros Kolokotronis í Tripoli. Leikurinn hefst klukkan 14:00 og hefur Davíð Snorri Jónasson opinberað byrjunarlið sitt fyrir leikinn.

Fylgstu með leiknum í beinni textalýsingu

Davíð gerir fjórar breytingar frá liðinu sem vann Liechtenstein 0-3 á föstudag. Það vekur athygli að Kristall Máni Ingason, sem átti virkilega góðan leik gegn Portúgal í október, byrjar á bekknum.

Viktor Örlygur Andrason, Birkir Heimisson, Jökull Andrésson og Bjarki Steinn Bjarkason koma inn í liðið fyrir þá Valgeir Valgeirsson, Ágúst Eðvald Hlynsson, Hákon Rafn Valdimarsson og Karl Friðleif Gunnarsson.

Byrjunarlið Íslands:
12. Jökull Andrésson (m)
4. Birkir Heimisson
7. Finnur Tómas Pálmason
8. Kolbeinn Þórðarson
9. Brynjólfur Willumsson (f)
10. Kristian Nökkvi Hlynsson
11. Bjarki Steinn Bjarkason
16. Hákon Arnar Haraldsson
17. Atli Barkarson
18. Viktor Örlygur Andrason
21. Valgeir Lunddal Friðriksson


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner