þri 16. nóvember 2021 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Coutinho ætlar ekki til Newcastle í janúar
Philippe Coutinho.
Philippe Coutinho.
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Philippe Coutinho mun hafna Newcastle og öðrum félögum í janúar.

Coutinho hefur átt erfitt uppdráttar frá því hann gekk í raðir félagsins frá Liverpool árið 2018 fyrir allt að 142 milljónir punda.

Hann hefur verið mikið orðaður við önnur félög síðustu ár og mánuði og hefur hann helst verið orðaður við hið nýríka félag Newcastle upp á síðkastið.

SPORT á Spáni segir hins vegar að Coutinho sé búinn að ákveða að fara ekki neitt.

Xavi er tekinn við Barcelona og Coutinho vill sjá hvernig málin þróast undir hans stjórn. Hann ætlar allavega að klára tímabilið með Barcelona ef marka má SPORT.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner