Varnarmaðurinn Benjamin Mendy hjá Manchester City hefur verið ákærður fyrir tvær nauðganir til viðbótar.
Hann er áfram í gæsluvarðhaldi en hans bíða nú alls sex kærur fyrir nauðganir og ein fyrir kynferðisofbeldi.
Hann er áfram í gæsluvarðhaldi en hans bíða nú alls sex kærur fyrir nauðganir og ein fyrir kynferðisofbeldi.
Ákærurnar tengjast fjórum einstaklingum sem eru yfir 16 ára aldri og brotin eiga að hafa átt sér stað milli október 2020 og ágúst 2021.
Franski landsliðsmaðurinn hefur spilað fyrir Manchester City síðan 2017. Hann gekk í raðir félagsins frá Mónakó.
City hefur sent Mendy í ótímabundið leyfi. Hann mun mæta í dómssal á morgun.
Athugasemdir