Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 16. nóvember 2021 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nketiah vill nýja áskorun og fleiri mínútur
Eddie Nketiah.
Eddie Nketiah.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Eddie Nketiah hefur tjáð Arsenal það að hann ætli sér að fara frá félaginu.

Nketiah verður samningslaus næsta sumar og hefur hann ekki áhuga á því að framlengja samninginn. Það er Daily Mail sem greinir frá þessu.

Sagt er að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hafi reynt að sannfæra Nketiah um að halda áfram en ekki tekist það.

Nketiah, sem verður 23 ára í maí, er tilbúinn í nýja áskorun og vill fá að spila meira.

Crystal Palace og þýska úrvalsdeildarfélagið Borussia Mönchengladbach hafa áhuga á sóknarmanninum.

Nketiah hefur skorað tvö mörk í tveimur leikjum á þessu tímabili. Báðir leikirnir voru í deildabikarnum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner