Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. nóvember 2021 21:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Park og Evra mjög nánir - „Ji er guðfaðir sonar míns"
Evra með Meistaradeildarbikarinn sem hann vann með Man Utd 2008.
Evra með Meistaradeildarbikarinn sem hann vann með Man Utd 2008.
Mynd: Getty Images
Patrice Evra hefur greint frá því að hann og Park Ji-sung séu mjög góðir vinir.

Þeir spiluðu saman hjá Manchester United á sínum tíma og hafa þeir haldið góðu sambandi eftir það.

Evra segir að Park, sem var frábær leikmaður fyrir Man Utd fyrir nokkrum árum síðan, sé besti vinur sinn. Þeir eru það góðir vinir að Park er guðfaðir barns Evra.

„Ég kann vel við fólk sem er feimið. Þegar einhver opnar sig ekki of mikið, þá fer ég að tala við það. Ji er guðfaðir sonar míns. Hann er meira en bara vinur minn," sagði Evra við heimasíðu Man Utd og bætti við:

„Hann er svo auðmjúk manneskja en hann er líka mjög fyndinn náungi... hann er bróðir minn."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner