Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 16. desember 2018 09:00
Arnar Helgi Magnússon
Alisson segir Liverpool þurfa að vinna í dag
Mynd: Getty Images
Liverpool tekur á móti Manchester United í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni á í dag. Flautað verður til leiks á Anfield klukkan 16:00

Brasilíski markvörðurinn Alisson hefur vakið mikla kátínu á meðal stuðningsmanna Liverpool á tímabilinu en hann hefur staðið vaktina vel.

Alisson segir að ekkert annað en sigur komi til greina í leiknum ídag.

„Þetta er gífurlega mikilvægur leikur og gæti haft mikið að segja þegar mótið klárast í vor. Við þurfum að vinna þennan leik. Við munum hafa stuðningsmennina á bakvið okkur og vonandi náum við að halda þessu frábæra gengi okkar áfram,” segir Alisson.

„Ég get ekki beðið eftir að spila þennan leik. Þetta verður mikil upplifun fyrir mig og ég vona að áhorfendur fái skemmtilegan leik.”

Fyrir leikinn er Livepool með sextán stigum fleiri en Manchester United en þrátt fyrir það, ekki náð að vinna í síðustu átta viðreigunum þessara liða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner