Liverpool tekur á móti Manchester United í stórleik helgarinnar sem hefst klukkan 16:00.
Nathaniel Clyne er í byrjunarliði heimamanna í fjarveru Joe Gomez og Trent Alexander-Arnold sem eru báðir meiddir. Dejan Lovren byrjar leikinn einnig og er Joel Matip ekki í hóp vegna meiðsla.
Fabinho og Naby Keita byrja saman á miðjunni og er Jordan Henderson á bekknum og James Milner ekki í hóp. Mohamed Salah, Roberto FIrmino og Sadio Mane leiða sóknina og er Xherdan Shaqiri á bekknum ásamt Adam Lallana og Daniel Sturridge.
Paul Pogba, Juan Mata og Anthony Martial byrja allir á bekknum hjá Manchester United.
Romelu Lukaku er fremstur og byrjar Matteo Darmian sem miðvörður og er Ashley Young í bakverði.
Marcus Rashford og Jesse Lingard byrja framarlega á vellinum og er Diogo Dalot í hægri bakverði.
Liverpool getur endurheimt toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar með sigri en Man Utd þarf sigur til að vera samkeppnishæft um Meistaradeildarsæti.
Liverpool: Alisson, Clyne, Van Dijk, Lovren, Robertson, Fabinho, Wijnaldum, Keita, Salah, Firmino, Mane
Varamenn: Mignolet, Henderson, Sturridge, Moreno, Lallana, Shaqiri, Camacho
Man Utd: De Gea, Dalot, Smalling, Lindelof, Darmian, Young, Herrera, Matic, Rashford, Lingard, Lukaku
Varamenn: Romero, Bailly, Valencia, Fellaini, Mata, Pogba, Martial
Athugasemdir