Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 16. desember 2018 22:56
Ívan Guðjón Baldursson
Giggs: Lukaku gerir góðar sendingar að slæmum
Mynd: Getty Images
Ryan Giggs er einn fjölmargar stuðningsmanna Manchester United sem eru ekki par sáttir með gengi liðsins undir stjórn Jose Mourinho.

Dagurinn í dag var ekki ánægjulegur fyrir stuðningsmenn Man Utd vegna þess að liðið tapaði gegn Liverpool á Anfield, 3-1.

Giggs, sem er goðsögn hjá Man Utd, starfar fyrir Optus Sport í dag og skaut hann á Romelu Lukaku í leikhléinu.

„Við vorum einu sinni með sóknarmenn eins og Cantona sem gátu gert slæman bolta upp völlinn að góðum," sagði Giggs.

„Núna erum við með sóknarmenn eins og Lukaku sem gera góða bolta sem koma upp völlinn að slæmum."
Athugasemdir
banner
banner
banner