Harry Kane endaði í þriðja sæti í kjöri um íþróttamann ársins á Englandi en hann gerði gott mót með enska landsliðinu á HM í Rússlandi.
Kane var markahæsti leikmaður heimsmeistaramótsins er England endaði í fjórða sæti eftir töp gegn Króatíu í undanúrslitum og Belgíu í bronsleiknum.
Kane átti afar gott ár en ekki jafn gott og hjólreiðakappinn Geraint Thomas sem vann kosninguna.
Formúlu 1 meistarinn Lewis Hamilton hafnaði í öðru sæti en hann vann Formúlu 1 keppnina bæði í ár og í fyrra.
Athugasemdir