Botnlið Chievo náði í sitt fimmta jafntefli í röð í ítölsku efstu deildinni er liðið heimsótti Spal í fallbaráttunni.
Liðin gerðu markalaust jafntefli en Chievo er aðeins með fjögur stig eftir sextán umferðir eftir að hafa byrjað með þrjú stig í mínus. Spal er fimm stigum frá fallsæti.
Kevin Mirallas skoraði er Fiorentina hafði betur gegn nýliðum Empoli og var Emil Hallfreðsson fjarverandi vegna meiðsla er Frosinone tapaði á heimavelli gegn Sassuolo.
Gianluca Caprari og Fabio Quagliarella skoruðu þá mörk Sampdoria í Evrópubaráttunni gegn Parma.
Napoli heimsækir Cagliari klukkan 17:00 á íslenskum tíma og tekur Roma á móti Genoa í síðasta leik dagsins.
Fiorentina 3 - 1 Empoli
0-1 Rade Krunic ('24 )
1-1 Kevin Mirallas ('40 )
2-1 Giovanni Simeone ('59 )
3-1 Bryan Dabo ('78 )
Frosinone 0 - 2 Sassuolo
0-1 Alfred Duncan ('44 )
0-2 Domenico Berardi ('58 )
Sampdoria 2 - 0 Parma
1-0 Gianluca Caprari ('66 )
2-0 Fabio Quagliarella ('69 )
Spal 0 - 0 Chievo
Athugasemdir