Cagliari 0 - 1 Napoli
0-1 Arkadiusz Milik ('91)
0-1 Arkadiusz Milik ('91)
Staðan var markalaus eftir jafnan og tíðindalítinn fyrri hálfleik í viðureign Cagliari og Napoli.
Gestirnir frá Napólí voru mun meira með boltann en náðu ekki að skapa sér mikið af færum fyrr en eftir leikhlé.
Boltinn rataði þó ekki í netið fyrr en í uppbótartíma, þegar pólski sóknarmaðurinn Arkadiusz Milik skoraði beint úr aukaspyrnu rétt fyrir utan teig.
Napoli er í öðru sæti, átta stigum frá toppliði Juventus. Cagliari er í neðri hlutanum, sex stigum fyrir ofan fallsæti.
Athugasemdir