Manchester United er þessa stundina að tapa 3-1 fyrir Liverpool í stórleik helgarinnar í enska boltanum á Anfield.
Varnarleikurinn hjá Man Utd hefur verið til vandræða á tímabilinu og eru Rauðu djöflarnir búnir að fá 29 mörk á sig þegar tíu mínútur eru eftir af 17. umferð.
Það er einstaklega athyglisvert í ljósi þess að liðið fékk aðeins 28 mörk á sig allt síðasta tímabil.
Man Utd endaði í öðru sæti úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili en er í sjötta sæti eins og staðan er núna.
28 – Manchester United have now conceded 28 goals in the Premier League this season, equalling the number the Red Devils conceded in the entirety of the 2017/18 campaign. Porous. pic.twitter.com/slb9AGdH00
— OptaJoe (@OptaJoe) December 16, 2018
Athugasemdir