Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 16. desember 2018 16:01
Ívan Guðjón Baldursson
Meiðsli James Milner ekki alvarleg
Mynd: Getty Images
James Milner er ekki í leikmannahóp Liverpool sem tekur á móti Manchester United í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Nathaniel Clyne, sem hefur er í hægri bakverði þar sem Joe Gomez og Trent Alexander-Arnold eru einnig frá vegna meiðsla.

„Millie fann aðeins til í vöðva og við viljum ekki taka neina sénsa. Það er ekkert meira en það. Clyney er leikmaður í háum gæðaflokki og ég veit að hann er tilbúinn í þennan leik," sagði Klopp fyrir leikinn.

„Hann er ekki búinn að spila mikið fyrir okkur vegna meiðsla og mikillar samkeppni um byrjunarliðssæti, lífið getur verið ósanngjarnt.

„Hann er mikill fagmaður, er duglegur á æfingum og kvartar ekki. Hann er búinn að glíma við smávægileg meiðsli undanfarnar vikur en í dag er hann klár í slaginn, bæði andlega og líkamlega."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner