Xherdan Shaqiri var maður leiksins hjá Sky Sports er Liverpool lagði Manchester Untied að velli á Anfield með þremur mörkum gegn einu.
Shaqiri kom inn af bekknum þegar tuttugu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og staðan jöfn 1-1.
Það tók Svisslendinginn aðeins þrjár mínútur að koma sínum mönnum yfir á nýjan leik og sjö mínútum síðar tvöfaldaði hann forystuna og gerði út um leikinn.
Jamie Carragher er mikill stuðningsmaður Liverpool og afhenti hann sínum manni verðlaunin fyrir að vera besti maður leiksins.
Carragher grínaðist með það að kollegi sinn Gary Neville, sem hefur átt í vinalegum rifrildum við Shaqiri í gegnum tíðina, hafi átt að afhenda verðlaunin en ekki treyst sér til þess.
„Gary Neville ætlaði að afhenda verðlaunin en hann treysti sér ekki til að koma," sagði Carragher við Shaqiri, sem svaraði „Skilaðu kveðju til hans," og hló.
Want to love Shaqiri even more? Watch this a million times. #LFC pic.twitter.com/JHTQNPOGo0
— Nic Mason (@MrNickMason) December 16, 2018
Athugasemdir