Það hefur kyngt niður snjó í Serbíu síðustu daga og einn línuvarðanna í leik Partizan Belgrade og Macva Sabac fékk heldur betur að finna fyrir því á laugardaginn.
Stuðningsmenn Partizan eru þekktir fyrir mikla ástríðu og stundum kannski fullmikla. Þeir voru ósáttir með einhverja ákvörðun dómarans og ákváðu því að byrja að negla í hann snjóboltum.
Partizan fans pelting the poor assistant referee with snowballs. pic.twitter.com/xSNBNTYQJd
— Photos of Football (@photosofootball) December 15, 2018
Línuvörðurinn virtist hafa lítið gaman af þessu uppátæki stuðningsmanna og svo virðist vera sem að aðaldómarinn hafi stöðvað leikinn í einhverjar sekúndur vegna þessa.
Leiknum lauk með 0-0 jafntefli en Serbneska deildin er nú farin í frí fram í febrúar.
There is no way this game should be going ahead. WELCOME TO SERBIA! pic.twitter.com/lIUqgjFnnS
— Partizan Belgrade 🇬🇧 (@FKPartizanEN) December 14, 2018
Athugasemdir