Alexis Sanchez er ekki í leikmannahópi Manchester United sem að mætir Liverpool í dag.
Sanchez er að glíma við meiðsli en hann er nú staddur í heimalandinu þar sem að hann heimsótti munaðarleysingjahæli, færði gjafir og spjallaði um lífið og tilveruna.
Sanchez er að glíma við meiðsli en hann er nú staddur í heimalandinu þar sem að hann heimsótti munaðarleysingjahæli, færði gjafir og spjallaði um lífið og tilveruna.
Hann ráðlagði krökkunum sem að þar voru að byrja ekki að reykja né neyta áfengis. Þá kom spurning úr sal: „Eins og Arturo Vidal?
Spurningin vakti skemmtileg viðbrögð hjá viðstöddum og brast út mikill hlátur.
Arturo Vidal er sagður hafa átt í erfiðu sambandi við áfengisneyslu.
Myndband af þessu atviki má sjá hér að neðan.
- @Alexis_Sanchez : “yo no fumaba ni tomaba”
— flower (@idieego) December 14, 2018
- Cabro ql : “Y como el arturo?”
😂😂 pic.twitter.com/YGVBZXTzmp
Athugasemdir