Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 16. desember 2018 23:51
Ívan Guðjón Baldursson
Shaqiri: Það eru 23 leikmenn í liði
Mynd: Getty Images
Xherdan Shaqiri kom inn af bekknum og skoraði tvennu er Liverpool lagði Manchester United að velli á Anfield í dag.

Shaqiri var valinn maður leiksins af Sky Sports þrátt fyrir að hafa aðeins verið inná í rétt rúmlega 20 mínútur.

„Ég var að horfa á leikinn af bekknum og sá fullt af tækifærum fyrir mig til að gera eitthvað. Þetta er búinn að vera fullkominn dagur," sagði Shaqiri við Sky Sports að leikslokum.

„Mér finnst ekkert að því að byrja á bekknum, það eru bara 11 leikmenn sem geta byrjað inná. Það gleymist oft að til að afreka eitthvað þá þarf lið að vera með 23 leikmenn, ekki bara 11.

„Auðvitað vilja leikmenn frekar spila heldur en að sitja á bekknum."

Athugasemdir
banner
banner
banner