Chris Smalling átti að vera í byrjunarliði Manchester United gegn Liverpool í dag en meiddist í upphituninni.
Eric Bailly kemur inn í byrjunarliðið í hans stað og spilar í hjarta varnarinnar ásamt Victor Lindelöf og Matteo Darmian.
Þetta eru afar slæmar fréttir fyrir Rauðu djöflana sem eru þegar að glíma við mikið af meiðslum í vörninni.
Phil Jones tekur stöðu Bailly á varamannabekknum en hann var gagnrýndur fyrir slaka frammistöðu í 2-1 tapi gegn Valencia í vikunni.
Athugasemdir