fös 16. desember 2022 23:39
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Deeney og Chong sáu um Reading
Troy Deeney skoraði tvö fyrir Birmingham
Troy Deeney skoraði tvö fyrir Birmingham
Mynd: Getty Images
Birmingham 3 - 2 Reading
1-0 Troy Deeney ('2 )
2-0 Troy Deeney ('23 , víti)
3-0 Tahith Chong ('36 )
3-1 Lucas Joao ('83 )
3-2 Tom Ince ('90 )

Birmingham City vann Reading, 3-2, í ensku B-deildinni í kvöld en reynsluboltinn Troy Deeney skoraði tvö fyrir heimamenn.

Þessi 34 ára gamli sóknarmaður kom Birmingham yfir eftir rúma mínútu. Mamadou Loam, varnarmaður Reading, ætlaði að komast fyrir fyrirgjöf Leandro Bacuna, en boltinn skoppaði af honum og í hættusvæðið til Deeney sem skoraði örugglega.

Deeney fiskaði síðan vítaspyrnu á 22. mínútu er Naby Sarr braut á honum. Deeney fór á punktinn og tvöfaldaði forystuna áður en Tahith Chong gerði þriðja markið níu mínútum fyrir leikslok.

Reading kom til baka undir lok leiks. Lucas Joao skoraði sjö mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma áður en Tom Ince gerði annað markið seint í uppbótartíma.

Birmingham er í 7. sæti með 32 stig en Reading tveimur sætum neðar með jafnmörg stig en slakari markatölu.
Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leeds 38 25 7 6 70 28 +42 82
2 Leicester 37 26 4 7 74 33 +41 82
3 Ipswich Town 38 24 9 5 80 49 +31 81
4 Southampton 36 22 7 7 73 47 +26 73
5 West Brom 38 19 9 10 59 36 +23 66
6 Norwich 38 18 7 13 69 54 +15 61
7 Hull City 37 16 10 11 53 46 +7 58
8 Coventry 37 15 12 10 59 43 +16 57
9 Preston NE 37 16 8 13 49 54 -5 56
10 Middlesbrough 38 16 6 16 53 52 +1 54
11 Cardiff City 38 16 5 17 43 51 -8 53
12 Sunderland 38 14 6 18 48 45 +3 48
13 Watford 38 12 12 14 53 51 +2 48
14 Bristol City 38 13 8 17 42 45 -3 47
15 Swansea 38 12 10 16 48 58 -10 46
16 Millwall 38 11 10 17 36 50 -14 43
17 Blackburn 38 11 9 18 51 64 -13 42
18 Plymouth 38 10 11 17 54 62 -8 41
19 Stoke City 38 11 8 19 35 53 -18 41
20 QPR 38 10 10 18 36 50 -14 40
21 Birmingham 38 10 9 19 42 59 -17 39
22 Huddersfield 38 8 15 15 42 61 -19 39
23 Sheff Wed 38 11 5 22 30 61 -31 38
24 Rotherham 38 3 11 24 30 77 -47 20
Athugasemdir
banner