Margir spá því að Harvey Elliott, 19 ára gamall leikmaður Liverpool verði í landsliðshópi Englands á HM 2026.
Sú umræða truflar hann ekki, þvert á móti hvetur það hann til þess að leggja meira á sig.
„Það hvetur mig bara. Við eigum ótrúlega hæfileikaríka leikmenn, það er gaman að sjá svona unga leikmenn að fá tækifærið, Bellingham, Foden, Saka og allir þessir leikmenn verða í hópnum næstu árin," sagði Elliott.
„Þetta er rosalegt lið og það væri draumur að komast í það en ég þarf að leggja hart að mér til að komast í hópinn, hvað þá í liðið."
Athugasemdir