Leandro Bacuna er genginn til liðs við Watford á frjálsri sölu og mun spila með liðinu út þetta tímabil.
Bacuna er 31 árs gamall reynslumikill leikmaður en hann er uppalinn hjá Groningen í Hollandi. Hann hélt til Englands árið 2013 og skrifaði undir hjá Aston Villa.
Auk Villa hefur hann leikið með Reading og Cardiff og á yfir 300 leiki í úrvalsdeildinni og Championship deildinni.
Watford er í 5. sæti Championship deildarinnar 10 stigum á eftir toppliði Burnley eftir 22 umferðir.
Athugasemdir