Skoski bakvörðurinn Andrew Robertson er búinn að skrifa undir nýjan samning við Liverpool.
Robertson hefur verið meðal bestu vinstri bakvarða ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu og er hann nú samningsbundinn Liverpool til sumarsins 2024.
Robertson, sem var keyptur frá Hull City sumarið 2017, verður 25 ára í mars og hefur spilað 55 leiki frá komu sinni til Liverpool.
Þetta eru frábærar fregnir fyrir félagið sem er með fjögurra stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar sem stendur.
Athugasemdir