Manchester City hefur náð samkomulagi við Hadjuk Split um kaup á miðjumanninum Ante Palaversa.
Kaupverðið er í kringum sjö milljónir punda að sögn Sky Sports.
Kaupverðið er í kringum sjö milljónir punda að sögn Sky Sports.
Ante er 18 ára gamall en þessi varnarsinnaði miðjumaður þykir vera mikið efni.
Ante er U19 ára landsliðsmaður hjá Króatíu en Manchester City vill tryggja sér þjónustu hans fyrir framtíðina.
Á þessu tímabil hefur Ante skorað tvö mörk í sautján leikjum með Hadjuk Split í króatísku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir