Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. janúar 2019 15:00
Magnús Már Einarsson
Pellegrini um Arnautovic: Allir vilja fara ef þeir fá svona tilboð
TIl Kína eða ekki?
TIl Kína eða ekki?
Mynd: Getty Images
Manuel Pellegrini, stjóri West Ham, reiknar með að staða Marko Arnautovic skýrist betur á næstu dögum. West Ham hefur hafnað 35 milljóna punda tilboði frá kínverska félaginu Shanghai SIPG í Arnautovic.

Austurríkismaðurinn vill sjálfur fara til Kína þar sem hann myndi fá rosalegan samning.

„Þegar þú ert með svona risa tilboð þá vilja allir fara. Hann er samningsbundinn hér. Við vitum hvað gerist á næstu dögum," sagði Pellegrini í dag.

Fyrir tveimur árum neitaði Dmitri Payet að spila með West Ham til þrýsta á félagaskipti til Marseille. Pellegrini sér þó ekki eitthvað svipað í kortunum núna.

„Ég held að hann eigi ekki eftir að neita að spila," sagði Pellegrini en West Ham mætir Bournemouth á laugardaginn.

Pellegrini staðfesti einnig á fréttamannafundi í dag að hann vilji halda framherjanum Javier Hernandez en hann hefur verið orðaður við Valencia.
Athugasemdir
banner
banner
banner