Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 17. janúar 2019 14:29
Magnús Már Einarsson
Ramsey búinn að semja við Juventus
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal, er búinn að ná samkomulagi við Juventus um að ganga til liðs við félagið í sumar. Sky á Ítalíu segir frá þessu.

Ramsey verður samningslaus í sumar og fer þá frítt til ítölsku meistaranna.

Ramsey fór í læknisskoðun hjá Juventus um síðustu helgi en félagaskipti hans þangað hafa legið lengi í loftinu.

Talið er að Juventus muni formlega greina frá félagaskiptunum á morgun, föstudag.

Ramsey er 28 ára gamall en hann kom til Arsenal frá Cardiff árið 2008.
Athugasemdir
banner
banner