Barcelona 3 - 0 Levante (4-2 samanlagt)
1-0 Ousmane Dembele ('30)
2-0 Ousmane Dembele ('31)
3-0 Lionel Messi ('54)
1-0 Ousmane Dembele ('30)
2-0 Ousmane Dembele ('31)
3-0 Lionel Messi ('54)
Það var aðeins eitt lið á vellinum er Levante heimsótti Barcelona í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum spænska bikarsins.
Levante hafði unnið fyrri leikinn 2-1 á heimavelli og voru Börsungar í hefndarhug í kvöld. Lionel Messi og Ousmane Dembele reyndust hetjur kvöldsins.
Dembele skoraði fyrstu tvö mörk Börsunga með 100 sekúndna millibili. Messi bjó bæði mörkin til en Dembele var ótrúlega heppinn að skora úr færunum sínum, þar sem leikmenn Levante réttu honum mikla hjálparhönd.
Messi gerði út um leikinn þegar hann slapp í gegn í upphafi síðari hálfleiks og tryggði þátttöku Barcelona í 8-liða úrslitunum. Barca hefur unnið spænska bikarinn síðustu fjögur ár.
Athugasemdir