Englandsmeistarar Liverpool tóku á móti Manchester United í stórleik í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Heimamenn voru betri í fyrri hálfleik en að leikslokum voru þeir heppnir að sleppa með stig þökk sé Allison Becker sem varði meistaralega.
Þrátt fyrir mikla yfirburði á köflum áttu heimamenn ekki sérlega hættulegar marktilraunir og mistókst að skora á Anfield.
Þetta var í fyrsta sinn sem lærisveinar Klopp skora ekki í heimaleik í ensku úrvalsdeildinni í rúm tvö ár, eða síðan í október 2018.
Athugasemdir