Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 17. janúar 2023 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Einkunnir Wolves og Liverpool: Bajcetic og Thiago sterkir á miðjunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Liverpool er komið áfram í enska bikarnum eftir sigur í endurteknum leik gegn Wolves í kvöld.


Sky Sports gaf leikmönnum liðanna einkunn fyrir frammistöðu sína í kvöld.

Hjá Wolves stóð Ruben Neves upp úr en hann fékk átta í einkunn. Jose Sá fékk falleinkunn en hann leit ansi illa út í sigurmarkinu.

Harvey Elliott skoraði sigurmarkið og var valinn maður leiksins að mati Sky Sports. Hann fékk átta í einkunn rétt eins og Thiago en hinn ungi Stefan Bajcetic hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í kvöld en Sky Sports gefur honum sjö.

Cody Gakpo náði ekki að skora sitt fyrsta mark fyrir félagið í kvöld og fær sex.

Wolves: Sa (4), Lembikisa (5), Collins (6), Toti (6), Jonny (6), Hodge (5), Neves (8), Moutinho (6), Traore (7), Jimenez (6), Ait-Nouri (6).

Subs: Nunes (7), Semedo (7), Podence (6), Cunha (7).

Liverpool: Kelleher (7), Milner (7), Gomez (7), Konate (7), Tsimikas (7), Bajcetic (7), Thiago (8), Keita (6), Elliott (8), Carvalho (7), Gakpo (6).

Subs: Salah (6), Jones (6), Phillips (6), Doek (6), Fabinho (6).


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner