Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 17. janúar 2023 23:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Spænski konungsbikarinn: Sevilla í vandræðum með Alaves
Ivan Rakitic
Ivan Rakitic
Mynd: EPA

16-liða úrslit spænska Konungsbikarsins hófust í kvöld með tveimur leikjum.


Sevilla sem er í fallsæti í efstu deild heimsótti Alaves sem situr í fimmta sæti næst efstu deildar.

Heimamenn voru starkari aðilinn í leiknum en það var hins vegar reynsluboltinn Ivan Rakitic sem tryggði Sevilla sigurinn með eina marki leiksins strax í upphafi seinni hálfleiks eftir sendingu frá Jesus Navas.

Þetta var eina tilraun Sevilla á markið í leiknum.

Real Sociedad er einnig komið áfram eftir 1-0 sigur á Mallorca.

Real Sociedad 1 - 0 Mallorca
1-0 Roberto Navarro ('5 )

Alaves 0 - 1 Sevilla
0-1 Ivan Rakitic ('48 )


Athugasemdir
banner
banner
banner