Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 17. febrúar 2019 15:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Boro með sigur - Þreföld breyting í hálfleik
Assombalonga skoraði sigurmark Boro.
Assombalonga skoraði sigurmark Boro.
Mynd: Getty Images
Blackburn 0 - 1 Middlesbrough
0-1 Britt Assombalonga ('19 )
Rautt spjald:Derrick Williams, Blackburn ('45)

Það var einn leikur í Championship-deildinni í dag. Blackburn tók á móti Middlesbrough.

Fyrsta mark leiksins kom á 19. mínútu og það skoraði Britt Assombalonga fyrir gestina í Middlesbrough.

Staðan var 1-0 í hálfleik, en undir lok fyrri hálfleiks fékk Derrick Williams, leikmaður Blackburn, að líta rauða spjaldið. Tony Mowbray, stjóra Blackburn, leist ekki á blikuna fyrir seinni hálfleikinn og ákvað því að gera þrefalda breytingu í hálfleik.

Það varð til þess að engin mörk voru skoruð í seinni hálfleiknum. Lokatölur 1-0 fyrir Boro.

Middlesbrough er komið upp í fimmta sæti deildarinnar. Blackburn hefur tapað fjórum í röð og er í 14. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner