Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 17. febrúar 2019 13:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Danmörk: Jón Dagur fékk rautt spjald
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Vendsyssel gegn Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Hann er eflaust til í að gleyma þessum leik við fyrsta tækifæri.

Jón Dagur fékk að líta gult spjald á 21. mínútu og á 34. mínútu fékk hann sitt annað gula og þar með rautt.

Þetta setti Vendsyssel í vonda stöðu. Staðan í hálfleik var markalaus en í seinni hálfleiknum valtaði Horsens yfir Vendsyssel. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Horsens.

Vendsyssel er í næst neðsta sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 19 stig eftir 22 leiki.

Jón Dagur er tvítugur og er hann í láni hjá Vendsyssel frá Fulham.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner