Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 17. febrúar 2019 14:20
Fótbolti.net
Gylfi áritar í Hafnarfirði í dag
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni verður að árita í ísbúðinni Hafís á Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði milli 16:00-16:30 í dag.

Gylfi sem hefur leikið vel á yfirstandandi tímabili og skorað níu mörk og gefið 4 stoðsendingar fyrir lið sitt Everton sem situr í níunda sæti.

Everton leikur næst þann 26.febrúar þegar liðið heimsækir Aron Einar Gunnarsson og félaga til Cardiff. Það er mikilvægur leikur fyrir bæði lið og verður spennandi að sjá þann Íslendingaslag og köldum degi í Wales.

Gylfi stoppar stutt hér á landi og því hvetjum við alla til að fjölmenna í Hafís og fá áritun frá kappanum.
Athugasemdir
banner
banner