sun 17. febrúar 2019 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Robben á ekki góðar minningar frá Anfield - „Versti völlurinn"
Mynd: Getty Images
Arjen Robben, leikmaður Bayern München, hatar að spila á Anfield, heimavelli Liverpool.

Robben, sem er 35 ára, hefur þrisvar sinnum fallið úr leik í Meistaradeildinni á heimavelli Liverpool. Það gerðist tvisvar með Chelsea (2005 og 2007) og einu sinni með Real Madrid (2009).

„Ef þú spyrð mig um versta völlinn þá er það örugglega Liverpool," sagði Robben við Guardian.

„Það er alltaf einhver einn völlur. Þú átt alltaf andstæðing sem þú elskar að spila á móti og andstæðing sem þú hatar að spila á móti."

Robben vonast eflaust til að búa til betri minningar á Anfield núna í næstu viku þegar Bayern mætir Liverpool á leikvanginum í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner