Það eru tveir leikir sem hefjast á svipuðum tíma í enska boltanum í dag. Fyrst fer viðureign Millwall og Brighton af stað í 8-liða úrslitum bikarsins og korteri síðar hefst áhugaverður slagur Fulham og Liverpool í úrvalsdeildinni.
Byrjunarlið dagsins hafa verið staðfest og er hægt að sjá hér fyrir neðan en það er ekki margt sem kemur á óvart.
Fulham teflir fram sínu hefðbundna byrjunarliði rétt eins og Liverpool. Ljóst er að Jürgen Klopp hefur ákveðið að hvíla ekki lykilmenn sína sem spiluðu allan leikinn í 1-3 sigri gegn Bayern á miðvikudaginn.
Sóknarlína og varnarlína Liverpool helst sú sama og gegn Bayern en Fabinho og Adam Lallana koma inn á miðjuna fyrir Jordan Henderson og James Milner.
Liverpool þarf sigur til að ná toppsætinu af Manchester City sem mun þó eiga leik til góða.
Fulham: Rico, Fosu-Mensah, Chambers, Ream, Bryan, Seri, Anguissa, Babel, Cairney, Ayite, Mitrovic
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Van Dijk, Matip, Robertson, Fabinho, Wijnaldum, Lallana, Mane, Firmino, Salah
Millwall: Martin, Cooper, Williams, Wallace, Gregory, Ferguson, Romeo, Pearce, Tunnicliffe, O’Brien, Leonard
Brighton: Ryan, Montoya, Duffy, Dunk, Bernardo, Kayal, Stephens, Propper, Jahanbakhsh, Murray, Knockaert
Athugasemdir