Markverðirnir Ingvar Jónsson og Frederik Schram héldu hreinu í dönsku B-deildinni í dag.
Ingvar lék í 0-1 sigri Viborg gegn Fremad Amager á meðan Frederik varði mark Roskilde í 0-2 sigri gegn Hvidovre.
Ingvar og félagar í Viborg eru komnir upp í efsta sæti með sigrinum en toppbaráttan er hörð þar sem sex stig skilja sex efstu liðin að.
Roskilde er aftur á móti í fallbaráttunni og reif liðið sig upp úr fallsæti með sigrinum. Frederik og félagar eru tveimur stigum frá fallsvæðinu, einu stigi fyrir ofan Hvidovre.
Fremad Amager 0 - 1 Viborg
0-1 E. Scheel ('86)
Hvidovre 0 - 2 Roskilde
0-1 S. Hansen ('5)
0-2 E. Nielsen ('33)
Athugasemdir