Nú rétt í þessu var dregið í undanúrslit ensku bikarkeppninnar en Brighton varð í dag síðasta liðið til þess að tryggja sér farseðil í undanúrslitin eftir magnaða endurkomu gegn Milwall.
Manchester City var einnig í pottinum eftir dramatískan sigur á Swansea í gær en City skoraði tvö ólögleg mörk í leiknum. Ekkert VAR.
Úlfarnir slógu Manchester United út í gærkvöldi með 2-1 sigri á Molineux-vellinum. Í hádeginu í gær sigraði Watford síðan Crystal Palace.
Undanúrslitin:
Man City - Brighton
Wolves - Watford
Leikirnir verða spilaðir 6. og 7. apríl á Wembley. Úrslitaleikurinn fer síðan fram þann 18. maí, einnig á Wembley.
Athugasemdir