Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 17. mars 2019 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Drogba sagði Balotelli að ganga í raðir Marseille
Mynd: Getty Images
Mario Balotelli gekk í raðir Marseille í janúar og hefur byrjað gríðarlega vel hjá sínu nýja félagi, þar sem hann er kominn með fimm mörk í sjö keppnisleikjum.

Didier Drogba braust fram á sjónarsviðið þegar hann skoraði 32 mörk í 55 leikjum á einu tímabili með Marseille og var í kjölfarið keyptur til Chelsea. Það var Drogba sem ráðlagði Balotelli að ganga í raðir félagsins.

„Ég er mjög ánægður fyrir hönd Mario sérstaklega vegna þess að við spjölluðum um þessi félagaskipti til lengdar áður en hann tók ákvörðunina," sagði Drogba.

„Ég sagði honum að stökkva á þetta tækifæri vegna þess að Marseille er fullkomið félag fyrir hann. Nú er hann byrjaður að skora aftur og það gerir mig ánægðan."
Athugasemdir
banner
banner
banner