Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 17. mars 2019 16:45
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Fulham og Liverpool: Mane bestur
Mane skoraði er kominn með níu mörk í síðustu níu deildarleikjum Liverpool.
Mane skoraði er kominn með níu mörk í síðustu níu deildarleikjum Liverpool.
Mynd: Getty Images
Sadio Mane var maður leiksins er Liverpool lagði Fulham að velli í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.

Mane er eini leikmaður vallarins sem fær yfir 7 í einkunnagjöf Sky Sports en sex liðsfélagar hans fengu 7 í einkunn fyrir sinn þátt.

Mane skoraði fyrsta mark leiksins og fiskaði vítaspyrnuna sem gerði James Milner kleift að skora sigurmarkið.

Enginn stóð uppúr í liði Fulham þar sem leikmenn fá ýmist 5 eða 6 fyrir frammistöðu sína í leiknum.

Fulham er sem fyrr í fallsæti og stefnir beint aftur niður í Championship á meðan Liverpool náði toppsætinu með sigrinum og er þar með tveggja stiga forystu á Manchester City sem á leik til góða.

Fulham: Rico (5), Fosu-Mensah (6), Chambers (6), Ream (6), Bryan (6), Seri (5), Anguissa (6), Babel (6), Cairney (6), Ayite (5), Mitrovic (6)
Varamenn: Sessegnon (6), Christie (5)

Liverpool: Alisson (6), Alexander-Arnold (6), Van Dijk (6), Matip (7), Robertson (7), Fabinho (7), Wijnaldum (7), Lallana (6), Mane (8), Firmino (7), Salah (6)
Varamenn: Milner (7), Origi (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner