Fimm mörk í framlengingunni
Reading 3 - 2 Manchester United
0-1 Alex Greenwood ('98)
1-1 Remi Allen ('101)
1-2 Sjálfsmark ('106)
2-2 Rachel Furness ('108)
3-2 Rakel Hönnudóttir ('120)
0-1 Alex Greenwood ('98)
1-1 Remi Allen ('101)
1-2 Sjálfsmark ('106)
2-2 Rachel Furness ('108)
3-2 Rakel Hönnudóttir ('120)
Rakel Hönnudóttir var hetja Reading í mögnuðum bikarleik gegn Manchester United sem var að ljúka rétt í þessu.
Staðan var markalaus eftir 90 mínútur en Rauðu djöflarnir komust yfir með marki frá Alex Greenwood í framlengingu. Remi Allen náði að jafna áður en flautað var til leikhlés og staðan 1-1.
Gestirnir frá Manchester komust yfir með sjálfsmarki í upphafi síðari hálfleiks en aftur voru heimastúlkur snöggar að jafna, í þetta sinn með marki frá Rachel Furness.
Þegar allt virtist stefna í vítaspyrnukeppni náði Rakel Hönnudóttir að setja knöttinn í netið og tryggja þannig þátttöku Reading í undanúrslitum.
Athugasemdir